Mjög góður grænmetisréttur eða sem heitt meðlæti með kjötréttum. Ef notuð eru Basmati-hrísgrjón kemur örlítið hnetubragð af réttinum sem fer vel með blaðlauknum.
Matreiðslubók: The Onion Book eftir Carolyn Dille og Susan Belsinger.
Fyrir: 2 sem aðalréttur; 4 sem meðlæti.
Tími: ca. 30 mínútur.
Innihald:
2 bollar hrísgrjón, hvít eða brún
4 1/2 til 5 bollar heitt grænmetissoð, kjúklingasoð (fleytið fitunni ofan af), eða vatn
1 tsk. salt
2 msk. ólífuolía
1 msk. ósaltað smjör (ef nota á saltað smjör, þá má minnka viðbætta saltið um helming)
4 blaðlaukar, það dekksta af græna hlutanum skorið frá (geymið til að nota t.d. í súpu), skornar langsum í tvennt, skolaðar vel of skornar í 1/2 cm sneiðar
2 bollar sveppir í sneiðum
Salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Til að gera þennan rétt að vegan-grænmetisrétti skal nota grænmetissoð eða vatn, sleppa smjörinu og auka ólífuolíuna um 1 msk.
Aðferð:
Setjið hrísgrjónin, 4 bolla af soði/vatni og saltið í pott með þykkum botni, setjið lokið á og látið suðuna koma upp yfir meðalhita. Þegar sýður skal minnka hitann niður í lægsta hita sem þarf til að halda suðunni við (1/2 eða 1). Sjóðið í þann tíma sem gefinn er upp á hrísgrjónapakkanum. Þau eiga að vera gegnsoðin en ekki lin (sem sagt
al dente).
Á meðan grjónin eru að eldast skal hita ólífuolíuna við meðalhita á pönnu. Bætið við lauknum og snöggsteikið hann í um 3 mín. og hrærið í af og til.
Bætið sveppunum saman við og snöggsteikið með lauknum í ca. 3 mín. til viðbótar og hrærið í af og til. Bætið við 1/4 til 1/2 bolla af soði/vatni og smakkið til með salti og pipar. Lækkið hitann niður í 1, setjið lokið á og sjóðið í um 5 mín. og hrærið í af og til.
Þegar hrísgrjónin eru soðin er vatninu hellt vel af þeim og grjónunum blandað saman við laukinn og sveppina ásamt því sem eftir er af soðinu/vatninu. Smakkið til og berið fram heitt.
Til tilbreytingar má nota saman til helminga hrísgrjón og villihrísgrjón, nota morelle- eða chanterelle-sveppi í stað hvítra sveppa, og/eða bæta smá hvítvíni eða rauðvíni út í réttinn undir lok suðutímans.
Á myndinni var rétturinn skreyttur með graslauk áður en hann var borinn fram.