Smellið á myndina til að stækka hana |
Þetta er flottur smáréttur til að bera fram t.d. í Júróvisjón-partýum eða saumaklúbbum, eða bara í sunnudagsmatinn þegar mann langar í eitthvað gott en nennir ekki að vera að hafa mikið fyrir matnum.
Þessi uppskrift dugir í aðalrétt fyrir einn eða sem forréttur fyrir 3 til 4.
1 kjúklingabringa
1 lítið bréf beikon
ca. 0,8 dl púðursykur (hellið honum í dl-málið og leyfið honum að síga niður í það undan eigin þunga. Ekki þjappa.)
1/4 tsk cayenne-piparduft (meira eða minna eftir smekk)
1/2 tsk salt
tannstönglar
Smellið á myndina til að stækka hana |
Blandið saman púðursykrinum, cayenne-piparnum og saltinu. Veltið kjúklinga-beikonbögglunum upp úr blöndunni (það gæti þurft að hjápla blöndunni til að loða við - bara þrýsta létt með puttunum) og raðið þeim á smurðan ofnrekka yfir smurðu ofnfati (t.d. lasagna-fati). Ef einhver sykurblanda er eftir er gott að strá henni jafnt yfir bitana.
Bakið við ca. 175 °C í 30-35 mínútur. Beikonið ætti að vera orðið vel brúnað og stökkt á köntunum og sykurinn bráðnaður.
Athugasemdir:
- Rétturinn stendur einn og óstuddur án sósu eða meðlætis. Ef hann á að vera aðalréttur mæli ég þó með að bera fram með honum tómatbáta og gott brauð (t.d. hvítlauksbrauð), og að draga tannstönglana úr bitunum áður en hann er borinn fram.
- Ef hann er hafður mjög sterkur er gott að bera fram sýrðan rjóma með honum til að viðkvæmari gestir geti linað sviðann í munninum.
- Ef stækka á réttinn er rétt að bæta við ca. 1/2 dl af púðursykri fyrir hverja kjúklingabringu til viðbótar og smakka sig áfram með cayennpiparinn.